Grindavík 1 - Keflavík 0: Keflavík hætti eftir 35 góðar mínútur!
Boðið var upp á skemmtilegan leik í Röstinni í dag þar sem ákefðin var mikil og baráttan allsráðandi. Stemmingin var góð og vel mætt í húsið. Liðin voru bæði klár í slaginn og svo upphófst barátta sem stóð yfir í um 35 mínútur, svo vart mátti á milli sjá hvort liðið myndi fara með sigur af hólmi. Staðan var þá 80-80. En svo hættu Keflvíkingar að spila, voru að vísu ennþá inná vellinum, en gerðu ekkert af viti síðustu 5 mínúturnar. Heimamenn þökkuðu fyrir sig og gerðu út um leikinn í rólegheitunum, skoruðu 19 stig gegn 4 hjá Kef og leikurinn endaði 99-84. Staðan því orðin 1-0 fyrir Grindavík, en það lið sem fyrr vinur þrjá leiki kemst í úrslitin.
Ef frá eru skildar síðustu mínúturnar var lið Keflavíkur að leika vel í vörn og sókn þó alltaf megi gera betur. Vítahittnin var t.d. skelfileg, aðeins fóru 7 skot af 19 ofaní sem er 37% nýtirng (??!!??), en til gamans má geta að 3ja stiga hittnin var betri, þar fóru 9 skot í körfuna af 19 eða 47% sem er mjög gott. Nick lék manna best í kvöld, skoraði á allan hátt, og dró vagninn fyrir okkar menn. Hann gerði 28 stig, tók 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.
Baráttan var mikil í leiknum (mynd fengin frá www.vf.is)
En það var eins og enginn væri klár í að taka við keflinu þegar hann fór að lýjast undir lokin. Annars má segja að okkur hafi á engan hátt tekist að nýta okkur styrkinn undir körfunum, því þeir Derrick (15), Fannar (9) og Jonni (5) gerðu aðeins 29 stig, sem er of lítið. Þeir fengu líka of lítið af sendingum og má segja að vörn Grindvíkinga hafi gengið upp, en þeir hreinlega lágu á Derrick allan leikinn og héldu honum.
Bakverðirnir áttu ágætar rispur, Arnar var frískur og stjórnaði leiknum vel, ef frá eru skildar síðustu mínúturnar. Maggi var ógnandi en fékk mikið af óþarfa villum á stuttum tíma, Sverrir átti ágæta spretti, en mætti keyra meira upp völlinn. Gunnar Einarsson fann sig alls ekki, en átti þó 6 stoðsendingar. Jonni virkaði frískur og hefði mátt spreyta sig mun meira í leiknum.
Kanarnir voru góðir hjá Grindavík og skoruðu 66 stig og hirtu 35 fráköst. Einnig var Páll Axel beittur í þristunum að vanda.
Nú þurfa okkar menn að athuga hvað fór úrskeiðis, því þetta var óþarfa uppgjöf, leikurinn hafði verið prýðilegur mest allan tíman en hrundi svo óvænt. Það má ekki gerast aftur. En við erum nú undir, 0-1, og verðum að jafna metin á mánudaginn.