Grindavík 1 - Keflavík 1: Keflvískur sigur í körfuboltasýningu í Sláturhúsinu í kvöld
Nú kannaðist maður við Keflavíkurliðið! Baráttan, leikgleðin og hittnin sem einkenndi liðið í Evrópukeppninni fyrr í vetur mætti aftur til leiks í Sláturhúsið í kvöld. En Grindvíkingar voru líka gríðarsterkir með Kanana þrjá og Helga Jónas sem leynivopn. Og úr varð frábær skemmtun, án vafa einn allra flottasti leikur sem sést hefur í Intersport-deildinni í vetur. Tilþrif á báða bóga, troðslur, þristar og ódrepandi sigurvilji. Og svo kom Maggi Gun og kláraði leikinn í lokin. Niðurstaðan var 116-105 í hröðum og vel leiknum háspennuleik.
Hraðinn í þessum leik var með ólíkindum. Í upphafi gaf Derrick tóninn með 6 fyrstu stigunum og Arnar Freyr skoraði 10 stig í fyrsta leikhluta, auk þess sem hann átti 5 stoðsendingar. Frábær byrjun. En Helgi Jónas var sjóðheitur og smellti niður fimm þristum úr jafnmörgum tilraunum í fyrri hálfleik. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 35-28 og Keflavík hélt forystunni allan fyrri hálfleikinn, en þá var staðan 59-55.
Í seinni hálfleik var Keflavík yfirleitt skrefinu á undan en Grindavík jafnaði í stöðunni 71-71, en heimamenn náðu aftur forystunni, ekki síst vegna góðrar baráttu í sóknarfráköstunum, en þar var Fannar sérlega grimmur, tók 6 sóknarfráköst í leiknum.
Eftir þrjá leikhluta var forystan fjögur stig, 86-82 og í hönd fór æsispennandi lokakafli. Jones náði góðri troðslu og óvæntu þriggja stiga skoti og ágæt forysta bráðnaði niður í aðeins eitt stig, 104-103, þegar um 1.40 mín lifðu leiks. Þá fór um stuðningmenn, þar sem ýmis teikn voru á lofti um að leikurinn væri að snúast við. En þá kom að Magnúsar kafla Gunnarssonar, en hann setti niður þrjá þrista á lokamínútunni og Nick bætti einum við. Keflavík skoraði sem sagt 12-2 á 100 sekúndum og gerði út um leikinn.
Bæði liðin léku vel í kvöld og þótt ótrúlega megi virðast þá var varnarleikurinn alls ekki slakur þrátt fyrir hátt stigaskor. Menn voru einfaldlega í stuði, hittu vel og bæði lið keyrðu grimmt upp hraðann. Derrick Allen átti enn einn stórleikinn, en liðsheildin var sigurvegarinn í þetta skitpið, því allir áttu sinn skerf. Arnar og Sverrir stjórnuðu leiknum vel, skoruðu grimmt, og áttu samtals 14 stoðsendingar. Nick, Fannar og Jonni skiluðu sínu báðu megin á vellinum og Maggi kláraði dæmið með 9 síðustu stigin í leiknum. Ef eitthvað má gagnrýna þá er það helst að menn létu Helga Jónas leika of lausum hala í fyrri hálfleik og svo hitt, að vörnin náði oft ekki að stilla sig af þegar Jones eða Lewis keyrðu inn í vörnina. Afleiðingin voru of mörg sóknarfráköst Grindvíkinga.
Dómararnir, Aðalsteinn og Björgvin, áttu ágætan dag í hröðum og erfiðum leik, þótt ýmislegt megi auðvitað sjá í hægri endursýningu í sjónvarpi sem hefði mátt vera öðruvísi. Verst var kannski , frá sjónarhorni Keflvíkinga, að þeir misstu af því þegar Rogers sló Arnar Frey í andlitið og hefði átt að fá refsingu fyrir. Rogers er harður nagli og ansi grófur en komst upp með mikið í leiknum.
Þessi sigur var lífsnauðsynlegur fyrir Keflavík, því nú er einvígið aftur komið á byrjunarreit. Okkur hefur oft gengið vel í Grindavík á undanförnum árum og nú þarf liðið að mæta þangað með sömu baráttu og áræðni í farteskinu og í kvöld. Þá getur allt gerst.
Áhorfendur fjölmenntu og stemmningin var frábær á leiknum, enda ekki hægt að biðja um meiri skemmtun. Hittnin var ótrúleg og til dæmis hittu Keflvíkingar úr 13 af 29 3ja stiga skotum (46%) og Grindaví úr 10 af 18 (56%). Samtals 23 af 47 eða um 50% hittni. Sem er í hærri kantinum, svo ekki verði meira sagt, sérstaklega í svona mikilvægum leik.
Flæðið í innáskiptingum var gott í þessum leik og jafnvægið milli "inside" og "outside" í sókninni gott, mun betra en í síðasta leik þar sem stóru strákarnir fengu of lítið að moða úr. Nú skoruðu þeir Derrick, Fannar og Jonni um 50 stig og í kjölfarið opnaðist mun meira fyrir skytturnar sem nýttu færin vel.
ÁFRAM KEFLAVÍK!!!