Grindavík-Keflavík í kvöld kl 19.15
Keflavíkingar mæta í Röstina í Grindavík í 18 umferð Intersportdeildar. Grindvík er í 8 sæti í deildinni og hafa unnið 8 leiki af 17. Stigahæstir Grindvíkinga er Darrel Lewis með 28 stig og Páll Axel með 21 stig. Lið Grindavíkur hefur breyst mikið á tímabilinu. Keflvíkingurinn Einar Einarsson tók við að Keflvíkingum Kidda Friðriks sem þjálfari og Guðlaugur Eyjólfsson hætti á miðju tímabili. Einnig hafa nokkrir kanar komið og farið, en þeir sem nú spila með þeim eru: Darrel Lewis ( Íslenkst ríkisfang), Terrel Taylor og sá nýjasti Jeffrey Boschee. Jeffrey Boschee spilaði einmitt með Nick í háskólaboltanum og þykir góð skytta. Grindavík kom í heimsókn til okkar í Keflavík 15 nov og fór sá leikur 84-73. Stigahæstir Keflvíkinga í þeim leik voru Nick með 26 stig, Tony með 15 stig og Gunni E. og Arnar með 11 stig hvor. Leikurinn er sem sagt í Grindavík á fimmtudaginn kl 19.15.