Grindvíkingar heimsóttir - leikur númer 2 er á morgun
Keflavík og Grindavík mætast nú í úrslitakeppninni fjórða árið í röð. Undanfarin þrjú ár hefur Keflavík verið endastöðin fyrir Grindvíkinga, 3-1, 3-0 og 3-2 hafa niðurstöður verið í undanúrslitum og úrslitum síðustu þriggja ára. Spurningin er núna hvort Kefarar slái Grindjána út fjórða árið í röð? Ekkert er víst í þeim efnum en vissulega verða okkar menn að teljast sigurstranglegir.
Árangur Grindvíkinga hefur valdið þeim vonbrigðum í vetur, svo mikið er víst, ekki síst þar sem þeir búa yfir þeim lúxus að hafa Darryl Lewis sem Íslending og geta þess utan tjaldað tveimur Könum, ekki ósvipað og var hjá okkur með Damon og Ed hér um árið eða hjá Njarðvík með Brenton og Pete Philo. En væntingar hafa ekki verið uppfylltar og ágætlega mannað liðið hefur ekki náð að vinna nema um helming leikja sinna. Það skal þó enginn velkjast í vafa um að leikmenn liðsins eru öflugir og ef þeir hitta á góðan dag er voðinn vís fyrir okkar menn. Það höfum við oft fengið að upplifa í Röstinni í gegnum árin. Því er varasamt fyrir leikmenn og aðstandendur Keflvíkinga að vera sigurvissir, slíkt kann aldrei góðri lukku að stýra.
Keflavík hefur sýnt mestan stöðugleikan í vetur, um það eru a.m.k. margir sammála. Liðið er nánast óbreytt frá því í fyrra og hefur fengið góða reynslu með þátttöku í Evrópukeppninni s.l. tvö ár. Kanarnir eru sterkir, en þeir eru hluti af liðsheild, ekki einspilarar. Varnarleikur okkar manna hefur verið góður og hann fleytir okkur oft yfir erfiða hjalla, þegar sóknin verður stirð, eins og stundum vill verða. Það er því afar mikilvægt fyrir morgundaginn að okkar menn mæti til leiks reiðubúnir að leika varnarleik eins og hann gerist bestur, því þá skapast mikið af auðveldum tækifærum til að skora. Vörnin er lykilatriði, það verður aldrei of oft sagt.
Við vitum að Siggi, Falur og strákarnir eru hungraðir í að komast alla leið í úrslitin og fyrsta skrefið var stigið í gær með ágætum sigri. En það þarf að hafa mikið fyrir öllum hlutum í úrslitakeppni, ekki síst á útivelli. Vonandi tekst okkar mönnum vel upp á morgun og þá er allt mögulegt....
ÁFRAM KEFLAVÍK !