Fréttir

Körfubolti | 5. nóvember 2003

Guðjón vill fá hraðan sóknarleik strax í upphafi

Í spjalli við heimasíðuna í gærkvöldi sagði Guðjón Skúlason að þjálfararnir legðu mikla áherslu á að leika hraðan og grimman sóknarleik strax frá upphafi leiksins. Þrjár stórskyttur munu hefja leikinn, þeir Magnús, Gunnar Ein og Falur, auk Nicks og Derricks. Mikið 3ja stiga “power” er í byrjunarliðinu og vonandi verða menn heitir.

Guðjón sagði að þeim Derrick og Nick sé ætlað það veigamikla hlutverk að kljást við aðalskorara Ovarense, þá Herb Jones og Morales, þann spænska. Gunnar Ein hefur líklega leikinn gegn “Wild Thing” Wilson og má búa sig undir að þurfa að “stíga vel út”, enda Wilson alkunnur fyrir mikinn stökkkraft.

Annars eru þjálfararnir vel stemmdir fyrir leikinn og Falur sagði að liðið væri vel undirbúið og hugur í mannskapnum. “Því miður er ekki pláss fyrir alla okkar leikmenn í 10 manna hópnum” sagði Falur, “en þeir 10 sem valdir hafa verið munu leggja sig alla fram í vörn og sókn.”

Liðið á morgun verður skipað eftirtöldum leikmönnum:
Falur, Magnús, Gunnar Ein, Nick, Derrick, Sverrir Þór, Hjörtur, Arnar Freyr, Jonni og Halldór.