Fréttir

Körfubolti | 24. apríl 2004

Gunnar E frá í 10 vikur

Eins og menn muna kannski, þá fékk Gunnar Einarsson högg á hnéð á æfingu í lok leiktíðar. Hann missti af einum leik en lét sig hafa það og spilaði út leiktíðina. Nú hefur komið í ljós að meiðslin voru alvarlegri en talið var í fyrstu. Honum hefur verið ráðlagt af lækni að hvíla sig í 10 vikur og jafna sig. Liðbönd á hné trosnuðu við höggið sem hann fékk og er hvíld nauðsynleg til að hann nái fullum bata. Þetta þýðir að Gunnar mun væntanlega missa af hluta landsliðsprógrammsins, en síðla sumars ætti hann að vera kominn í gang að nýju ef allt gengur skv. óskum. Við óskum honum góðs bata.