Fréttir

Körfubolti | 29. desember 2003

Gunnar Einarsson er körfuboltamaður ársins 2003 og íþróttamaður ársins hjá Keflavík

Laugardaginn 27. des. s.l. fór fram útnefning á íþróttamanni félagsins í K-húsinu. Allar deildir félagsins höfðu valið íþróttamann ársins innan sinnar deildar og hafði stjórn körfuknattleiksdeildarinnar valið Gunnar Einarsson sem körfuboltamann ársins 2003.

Aðalstjórn félagsins tilkynnti hverjir hefðu orðið fyrir valinu hjá deildunum og tilkynnti síðan val sitt á íþróttamanni ársins, en það var einmitt körfuboltamaðurinn Gunnar Einarsson sem varð fyrir valinu. Gunnar er vel að heiðri þessum kominn og óskar Heimasíðan honum til hamingju.

Þess má geta að Netverjar eru greinilega sammála Heimasíðunni því á undanförnum dögum hefur farið fram net-kosning um hvaða leikmaður hefði staðið sig best fram til þessa (Derrick og Nick ekki taldir með). Þar hlaut Gunnar yfirburðakosningu, en annars var niðurstaða ykkar netverja þessi (5 efstu):

  1. Gunnar Einarsson       49 atkvæði  (36%)
  2. Falur Harðarson         24 atkvæði  (17%)
  3. Sverrir Þór Sverrison  21 atkvæði  (15%)
  4. Jón N Hafsteinsson     16 atkvæði  (11%)
  5. Magnús Gunnarsson    13 atkvæði  (9%)