Fréttir

Körfubolti | 2. mars 2004

Gunnar Einarsson fékk högg á hnéð á æfingu

Mikil barátta var á æfingu fyrr í kvöld, enda menn að koma sér í gírinn fyrir úrslitakeppnina. Gunnar Einarsson var svo óheppinn að fá högg frá samherja á utanvert hnéð með þeim afleiðingum að liðböndin á innanverðum hnjáliðnum tognuðu. Falur Daðason sjúkraþjálfari hugaði að meiðslum Gunnars og á þessari stundu er ekki ljóst hve lengi Gunnar þarf að hvíla. Flest bendir þó til að Gunnar eigi að vera fljótur að jafna sig, þó ólíklegt verði að telja að hann leiki með gegn Haukum á fimmtudag. Gunnar þarf að fara í myndatöku til að ganga úr skugga um að meiðslin séu ekki alvarleg.