Gunnar Stefánsson með flautukörfu frá miðju í sigri á KFÍ
Leikurinn í kvöld fór rólega af stað og virtist sem Keflavík væru ekki mætir í leikinn í fyrrihalfleik. Leikmenn KFÍ fengu mikið af opnum færum og hittu mjög vel. Séstaklega var Pétur Sigurðsson heitur og var með góða nýtingu í 3 stiga og kominn með 13 stig í hálfleik. Leikmenn Keflavíkur vour heldur værukærir eins og fyrr sagði. Tilþrif leiksins átti Gunnar Stefánsson þegar hann skoraði fallega flautukörfu frá miðju við mikinn fögnuð frá áhorfendum og leikmönum Keflavíkur. Í seinni hálfleik var allt annað að sjá liðið og leikmenn fóru að taka leikinn alvarlega. Nick, Tony, Halldór, Gunnar Stef. og Gunnar Einarsson skiluðu sínu og sprengdu leikmenn KFÍ sem hafa litla breidd í liðinu. Gaman var að sjá alla leikmenn fá að spreyta sig í leiknum, og átti Halldór, Gunnar Stef og Sævar fína innkomu. Semsagt fyrihafna lítill sigur þó að KFÍ hafi verið yfir í hálfleik 43-46, lokatölur 106-81.
Tölfræði úr leiknum hér.Keflavík - KFÍ