Fréttir

Körfubolti | 11. mars 2004

Gunni Einars ætlar að láta reyna á fingurinn, en Arnar Freyr og Davíð meiddust á æfingu

Gunnar Einarsson mætti á æfingu með vel teipaða og plástraða fingur og prófaði hvort hann gæti spilað körfubolta. Hann var einnig með hlíf utan um löngutöngina og aðra utan um hnéð. Þetta virtist allt virka ágætlega, þótt ekki sé hann búinn að jafna sig 100%. Samt telur hann sig leikhæfan, með 6 spor í puttanum, og ætlar að mæta til leiks annað kvöld, enda hörkutól.

Arnar Freyr fékk hins vegar verk í lærið, rétt ofan við hnéskelina og varð að hætta á æfingu, líkt og Davíð sem sneri sig. Arnar verður þó kannski með, en hann á að fara í skoðun á morgun. Meiðslin voru af þeim toga að erfitt er að segja hve mikil þau eru, hann gæti þess vegna jafnað sig á einum degi.

En annars er hugurinn stór hjá köppunum öllum og okkar mönnum verður ekkert að vanbúnaði að leika af fullum krafti á morgun. Liði verður þannig skipað:

Nick, Derrick, Fannar, Sverrir Þór, Gunnar E, Magnús, Halldór, Jonni, Hjörtur og Arnar Freyr (eða Gunnar Stef).