Haldið í Síkið á Sauðárkróki
Eftir þægilegan sigur í fyrsta leik, þar sem Keflavíkurliðið bauð upp á góða og slaka kafla, er komið að leik númer tvö gegn Tindastóli. Sá leikur verður háður á Króknum og þar eru Stólarnir alla jafna sterkari en á Suðurnesjum. Að sama skapi er Keflavíkurliðið yfirleitt slakara en heima fyrir. En okkar menn sýndu að viljinn er til staðar og gaman verður að sjá hvort þeim takist að ná upp réttu stemmingunni á útivelli, því sannarlega er þetta fyrsti “alvöru” útileikurinn í langan tíma. Gunni, Maggi, Fannar og Jonni sýndu allir sitt rétta andlit á föstudaginn og ef þeir halda einbeitingunni megum við vonast eftir góðum leik.
Stólarnir voru án Nick Boyd í fyrsta leiknum og ekki vitum við hvort hann muni leika með í næsta leik. Hann meiddist á ökkla fyrir skömmu og virðist hafa bólgnað illa því oft eru ökklameiðsli aðeins spurning um örfáa daga. Hann mun eflaust reyna sitt besta til að spila, en við sjáum bara til.
Mikilvægt er fyrir okkar menn að halda einbeitingunni allan leikinn, en það hefur loðað við liðið að gefa eftir góða forystu, annað hvort með einbeitingarleysi eða þá að takturinn hverfi úr liðinu vegna tíðra innáskiptinga.
Búast má við mikilli hörku heimamanna, ekki síst undir körfunum, og þar þurfa okkar menn að vera klárir í slaginn, í orðsins fyllstu merkingu. Derrick fékk óblíðar móttökur í síðasta leik en vonandi verða dómararnir betur með á nótunum í næsta leik, því það er samkvæmt reglum óleyfilegt að halda mönnum og ýta þeim þegar þeir eru að athafna sig undir körfunni.
Arnar Freyr og Gunnar Stef höfðu sætaskipti, en sá síðarnefndi kemur inn í liðið í dag. Að öðru leyti er liðið óbreytt, skipað þeim Nick, Derrick, Gunna E, Fannari, Magga, Sverri Þór, Hirti, Jonna, Halldóri og svo Gunna Stef. Við vonum að ferðin norður gangi vel og að Holtavörðuheiðin dragi ekki máttinn úr mannskapnum eins og allt of oft hefur gerst. Trommararnir út stuðningsmannasveitinni munu fylgja liðinu norður ásamt nokkrum öðrum stuðningsmönnum og munu þeir eflaust styðja dyggilega við bakið á okkar mönnum.
ÁFRAM KEFLAVÍK!!!