Fréttir

Körfubolti | 16. desember 2003

Hálfleikstölur: 52-42 fyrir Ovarense. Lesið meira . . .

Fyrri háflleikur hefur verið afar erfiður okkar mönnum. Portúgalarnir eru einfaldlega sprækari og nú eru það þeir sem keyra á okkur, ekki öfugt. Þeir fá mikið af fríum skotum, en ekki við, hlutirnir eru erfiðir. Bakverðir þeirra leika grimma vörn og dekka okkar menn afar stíft, allan völlinn. Falur og Maggi hafa ekki náð sér á strik gegn þeim. Wilson hinn stóri er í fantaformi og virkar grennri en þegar hann lék í Keflavík. Jonni átti góða innkomu og setti m.a. þrist sem gerist nú ekki á hverjum degi . . . . Annars hefur lítið verið um opin skot og hittnin slök. En heill hálfleikur er eftir og ýmislegt mögulegt, þótt ekki hafi Birgir fararstjóri geislað af bjartsýni.

Hjá Keflavík hefur Derrick skorað mest, 12 stig. Næstir koma Jonni og Gunni E. með 9 hvor, Nick 7, Arnar 4 og Falur 1.