Fréttir

Körfubolti | 4. apríl 2003

Hamingjuóskir frá Ísafirði og KR

Það er ávallt gaman til þess að vita þegar andstæðingar og félagar úr körfunni samgleðjast og virða það sem vel er gert. Stúlkurnar okkar hafa heillað marga með spilamennsku sinni í vetur og hér eru birt tvö heillasókaskeyti sem borist hafa heimasíðunni:


Til Önnu Maríu og mfl. kv.
 
Innilega til lukku með Íslandsmeistaratitilinn og árangurinn í vetur.
 
kveðja,
 
Óskar Kristjánsson
KR-ingur

- - - - -

Til hamingju Anna María og co.

Þið voruð langgggggggbestar í vetur og áttuð að taka allt. En uppskeran eigi síður frábær. Njótið sigursins.
 
Kveðja frá Ísó.
 
Gaui.Þ