Handbókin borin í hús
Handbók körfuknattleiksdeildar Keflavíkur fyrir leiktíðina 2003-04 verður borin í hús í dag og á morgun. Handbókin hefur að geyma upplýsingar um starfsemi deildarinnar og ýmis viðtöl og kynningar á leikmönnum, svo fátt eitt sé nefnt. Forsíðu handbókarinnar prýða núverandi Íslandsmeistarar karla og kvenna. Ásamt handbókinni fylgir auglýsing um næsta Evrópuleik sem verður á miðvikudaginn.