Handbókin borin í hvert hús í Keflavík
Handbók körfuknattleiksdeildarinnar er komin út og verður borin í hvert hús ásamt auglýsingu um næstu leiki. Mikil hefð er fyrir handbókinni en fyrst um sinn hét hún reyndar leikjaskrá og innihélt ekki síst skrá yfir leiki vetrarins og leikmenn liðsins. Nú á dögum er aðgengi upplýsinga öllu meira en fyrir tuttugu árum eða svo og tilgangur handbókarinnar hefur breyst.
Nú er þetta eins konar yfirlitsrit þar sem fram koma upplýsingar um leikmenn, eins og ávallt, en auk þess ýmis viðtöl og upptalningar á metum og staðreyndum úr starfi körfuknattleiksdeildarinnar. Einnig er handbókin tækifæri fyrir deildina til að koma upplýsingum áleiðis um öll þau fyrirtæki sem á bak við okkur standa. Upphaflega reyndu menn að koma handbókinni út í upphafi leiktíðar og gáfu áhorfendum kost á að glugga í hana. Nú hefur útbreiðslan aukist töluvert og er handbókin borin í hvert hús í bænum. Vonandi verður handbókinni vel tekið, en forsíðan er nokkuð flott, hún er samsett úr mörgum myndum af Gaua Skúla undir fyrirsögninni Gaui 700.