Fréttir

Körfubolti | 15. janúar 2005

Happadrætti og miði á Fribourg leikinn

Á leiknum á móti Snæfell á mánudaginn verða seldir miðar á Evrópuleikinn, Keflavík-Fribourg.  Miðinn er aðgöngumiði á leikinn ásamt því að vera happadrættismiði, þar sem vinningar eru mjög glæsilegir. Vinningar eru: fimm utanlandsferðir, tveir gsm símar, tveir ársmiðar á fótboltann og ársmiði á körfuboltann.  Leikmenn og stjórnarmenn verða einnig að selja miðana næstu daga. Miðinn kostar 1500 krónur