Harlem Ambassadors í Keflavík á morgun, miðvikudag
Harlem Ambassadors eru körfuboltasnillingar frá Ameríku. Fremsti leikmaður þeirra er kona sem kölluð er Lady Magic. Þeir gera margt annað en að spila körfu því ofarlega á þeirra lista eru forvarnir alls konar og ferðast þau um heiminn og ræða þau mál við börn og unglina.
Harlem mætir til Keflavíkur á morgun, miðvikudag, og munu þau skemmta krökkum úr 5. til 10. bekk úr Grindavík og Reykjanesbæ í íþróttahúsinu við Sunnubraut kl. 13 og spjalla við þá um forvarnir.
Seinna um kvöldið munu þau svo spila við Suðurnesjarisana, sem er samansafn af gömlum refum úr Suðurnesjakörfunni. Þar verða mættir menn eins og Stebbi Bjarka, Steini Bjarna, Siggi Ingimundar, Sæmi slæmi, Jónas Jóhannesson o.fl. Hugsanlegt er líka að ungfrú Ísland verði með.
Miðaverð á leikinn um kvöldið er aðeins 1000 kr. fyrir alla 10 ára og eldri. 9 ára og yngri fá frítt inn í fylgd með fullorðnum sem keypt hafa miða.