Harlem Globetrotters gera stormandi lukku
Harlem Globetrotters gera stormandi lukku í Keflavík
Í gærkvöldi mættu "show"kallarnir í Harlem Globetrotters í fyrsta sinn í sögunni til Keflavíkur. Eins og yfirleitt þegar þessir boltaskemmtikraftar mæta til leiks vöktu þeir ómælda ánægju meðal áhorfenda, sérstaklega þeirra yngri.
Vel var mætt í íþróttahúsið að Sunnubraut og létu áhorfendur hátt miðaverð ekki aftra sér frá skemmtuninni. Harlem snillingarnir hafa sérhæft sig á óhefðbundi sviði körfuboltans og setja á svið ýmsa leikþætti og brellur sem yfirleitt sjást ekki á körfuboltavellinum. Liðið var stofnað árið 1927 og hefur leikið listir sínar í 75 ár og engu glatað af sjarmanum.
Sýningin á eflaust eftir að heilla körfuboltageggjara um allt land og vonandi hvetur þetta ungviðið frekar til dáða og eflir körfuboltaáhugann hér á landi.