Háspenna í Röstinni
Enn einn spennuleikurinn að baki.Grindvíkingar sterkir í restina og leiða nú 2-1 þrátt fyrir góða stöðu okkar Keflvíkinga eftri 3. leikhluta. Staðan 2-1 Grindavík í vil.
Jafnræði var með liðunum framan af fyrsta leikhluta, en Keflvíkingar í við sterkari. 21-25 þegar flautað var til annars leikhluta.Keflvíkingar tóku frábæra vörn strax í 2.leikhluta og náðu mest 19 stiga forystu. Á þessum kafla gekk allt upp hjá okkar mönnum bæði í vörn og sókn, með Nick fremastan í vörninni sem stal á þessum kafla boltanum og tróð glæsilega, undir lok leikhlutans náðu Grindvíkingar að saxa á forskotið.Keflavík fór til leikhlés með 9 stiga forustu 46-55.
Grindvíkingar komu áhveðnir til síðari hálfleiks og náðu strax að koma muninum niður í fimm stig. En Diddi litli neitaði að gefast upp kom sterkur inn með 14 stig í 3. leikhlutanum (þegar drengurinn fær að spila alvöru körfubolta þar sem varnarmaður fær ekki að teikan, halda og gleymum ekki hvað Jackie fær að ýta endalaust, maður verður bara þreyttur að horfa á hvað Rogerinn er grófur enda fékk drengurinn að fjúka útaf eftir annað kjaftshöggið á Arnar) hvað um það forystan var okkar 69-77. Einhver vírus kom í leik Keflvíkinga í fjórða leikhluta Grindvíkingar komu frískir til baka með frábærum kafla Anthony Jones og Darrel Lewis komust úr 71-77 í 85-79 14-2 kafli Grindvíkinga. Keflvíkingar komust yfir vírusvarnarforrit sem Falur og Guðjón höfðu með sér og komust yfir 85-87 eftir það var leikurinn í járnum, þegar 15 sek voru eftir var staðn 93-94. Darrel fór á línuna, hittir úr öðru skoti sínu staðan 94-94. Keflvíkingar bruna upp völlinn en Pétur kemur í veg fyrir skot hjá Derrick. FRAMLENGT.
Kefvíkingar eiga fyrstu sókn í framlengingunni Nick átti misheppnað skot Keflvíkingar skiptu yfir í svæðisvörn á þessum tíma, Páll Axel skellir einum þrist í sínu uppáhalds færi og fær svo 2 víti í næstu sókn hittir báðum 99-94 Keflvíkingar komust aftur inn í leikinn 103-102 Pétur fær opið þriggjastiga skot kemur Grindavík í 106-102. Þarna var kominn tími á heimferð, en Maggi tók einn svakalegan 106-105. Keflavík nær boltanum aftur eftir misheppnaða sókn Grindvíkinga brunar í sókn Derrick fær opið skot en það geigar.
Staðan 2-1 fyrir Grindavík. Nú er bara að spýta í lófana, við förum ekki með bakið upp við neinn vegg það þarf að vinna þrjá leiki eins og áður liðið hefur sýnt ýsmislegt í vetur, góða leiki og frábæra leiki það eru allir búnir að gleyma hinum.
ÁFRAM KEFLAVÍK