Fréttir

Körfubolti | 31. mars 2005

HÁSPENNA!! Úrslitarimman hefst á morgun í Sláturhúsinu kl. 19.15

Nú er komið að úrslitastundu í íslenskum körfubolta 2005 og fjórða árið í röð erum við Keflvíkingar þátttakendur í úrslitunum. Síðustu tvö árin höfum við sigrað og höfum möguleika á því að vinna Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð, en það hefur Keflavík ekki tekist áður, síðast unnu Njarðvíkingar þrefalt (reyndar fjórfalt) frá 1984-1987 en metið er fimmfaldur sigur, því náðu ÍR-ingar árin 1960-1964. En frá 1987 hefur engu félagi tekist að ná “3-peat” eins og það kallast í NBA. Keflavík hefur orðið meistari sjö sinnum, fyrst árið 1989. Spáum aðeins í rimmuna sem er framundan.

Andstæðingar okkar, líkt og í fyrra, eru Snæfellingar. Snæfell endaði í öðru sæti deildarinnar og varð Hópbílameistari s.l. haust. Þeir unnu okkur fyrir jól í deildinni en við unnum seinni deildarleikinn, auk þess sem við slóum þá út úr bikarnum. Sem sagt 2-1 fyrir Kef í vetur, hingað til. Snæfell átti undir högg að sækja í 8-liða úrslitunum gegn KR en sigraði í oddaleik eftir þrjá hörkuleiki. Síðan fóru þeir taplausir í gegnum Fjölni þrátt fyrir að hafa þurft að hafa verulega mikið fyrir heimasigrunum þar.

Styrkur Snæfells er ekki síst hve jafnir þeir eru. Þeir hafa mjög góðan sex manna kjarna, Hlynur, Sigurður, Magni, Pálmi, Ames og Clemmons, og síðan ágætan sjöunda mann, Helga Rúnar. En þessir sex öflugu leikmenn mynda sterka liðsheild, ekki síst þar sem allir geta skorað nánast hvaðan sem er af vellinum (nema Clemmons sem tekur ekki 3ja stiga skot). Því er erfitt að leika vörn gegn þeim, þar sem allir geta refsað ef þeir eru látnir vera. Svæðisvörnin sem gekk svo vel gegn ÍR verður að vera svakalega beitt, þar sem allir geta skotið fyrir utan línuna, enginn má fá opið skot.

Snæfellingar eru líka hungraðir í sigur eftir að hafa verið í baráttunni í fyrra, en þó eru einungis tveir eftir í liðinu af þeim sem mestu máli skiptu í fyrra, þeir Hlynur og Sigurður. Hinir eru að leika í fyrsta skiptið í úrslitunum og gæti reynsluleysið haft einhver áhrif. Þeir eru hávaxnir og hafa þar forskot á okkar menn sem gæti gert Kefurum erfitt að athafna sig undir körfunum.

Veikleikar Snæfellinga eru samt nokkrir. Þeir mega lítið skipta þessum sex mönnum út af því liðið veikist um leið. Eins eru bakverðir þeirra ekki þeir öflugustu og því gætu þeir lent í vandræðum gegn grimmri pressuvörn Keflavíkur, ef hún nær sér á strik eins og hún gerði svo eftirminnilega gegn ÍR.

Keflavíkurliðið hefur nú leikið vel þrjá leiki í röð og strákarnir hreinlega gengu frá ÍR, unnu þrjá leiki í röð afar auðveldlega. Sjálfstraustið er mikið og strákarnir gjörþekkja þessa stöðu. Liðið hefur lítið breyst frá því í fyrra og hitteðfyrra og liðið því betur samæft en önnur lið á landinu, það sést vel í hörkuleikjum, enda þarf mikla samæfingu til að geta spilað góða pressu- og svæðisvörn. Sóknin getur batnað enn frekar, en stundum verður hún stirð ef of mikið hægist á leiknum. Gera má ráð fyrir að Snæfellingar reyni að ná niður hraðanum og nýta líkamsstyrkinn. Þeir munu sækja stíft að körfunum og reyna að koma Glover í vandræði.

Í vændum er svaka viðureign og mikil spenna. Heimasíðan er bjartsýn á góð úrslit, en minnir jafnframt á fyrsta leikinn gegn ÍR. Þar kom í ljós að við getum verið lélegir ef baráttan er ekki til staðar.

Mikið mun mæða á dómurum leikjanna og vonandi standa þeir sig vel og fá nauðsynlegan starfsfrið, þó hitinn í svona leikjum geti stundum farið nálægt suðumarki. Mikilvægt er að þeir geri það sem í þeirra valdi stendur til að láta leikina "fljóta" og hafi föst tök á leikjunum. Í úrslitakeppninni fram til þessa hefur dómgæslan verið misjöfn, en inn á milli hafa verið leikir, t.d. oddaleikur Keflavíkur og Grindavíkur, sem voru afar vel dæmdir og ekkert fór fyrir dómgæslunni allan leikinn, þrátt fyrir að leikurinn hafi verið harður og jafn. Við vitum að dómararnir gera sitt besta og vonandi tekst okkur að viðurkenna öðru hvoru að dómur gegn eigin liði gæti hugsanlega verið réttur...

Áhorfendur beggja félaga eru skemmtilegir og hávaðasamir og má því gera ráð fyrir mikilli baráttu á pöllunum rétt eins og á vellinum.

Spennan nálgast nú hámark. Nú byrjar fjörið......
ÁFRAM KEFLAVÍK!