Haukar-Keflavík á föstudag kl 19.30
Frestaður leikur Hauka og Keflavíkur í 4 liða úrslitum bikarkeppni KKI og Lýsingar verður á föstudaginn næstkomandi. Leikurinn verður í íþróttahúsi Hauka að Ásvöllum kl 19.30. Leiknum var frestað vegna veikinda leikmanna. Liðið sem vinnur mætir Grindavík í úrslitaleik 13 feb. í laugardalshöll og er leikurinn á undan leik Njarðvíkur og Fjölnis og byrjar kl 13.30
Anna María í leik á móti Njarðvík