Fréttir

Körfubolti | 16. september 2005

Haustbragur á leik Keflavíkinga í gær

Keflavík tapaði í gær fyrir liði Njarðvíkur í Ljónagryfjunni, 82-68. Staðan í hálfleik 43-40 og nokkuð jafn með liðunum í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik stigu leikmenn Njarðvíkur skrefinu lengra og kláruðu leikinn frekar auðveldlega. Greinlegt var að sjá í leiknum í gær að Njarðvík er komið lengra í undirbúningi fyrir komandi átök í vetur.  Keflavíkurliðið er í ekki í mikilli leikæfingu, enda var liðið aðeins búið að æfa einu sinni saman fyrir leikinn í kvöld.

Zlatko og Jason komu til landsins í fyrradag og virtust frekar stirðir eins og reyndar flestir leikmenn liðsins. Zlatko áttu þó mun betri leik og nokkuð sprækur í fyrri hálfleik og skoraði 14 stig. Jason fann sig ekki í leiknum en  menn þóttust sjá góðar hreifingar hjá kappanum og einnig spilaði hann sæmilega vörn á köflum. Jonni spilaði ekki í gær vegna smávægilegra meiðsla og Gunni Stef. var fjarverandi.

Stighæstir voru Zlatko 14 stig ( öll í fyrri hálfleik ), Maggi 13 stig, Jason 11 og Elli 6 stig.

Ekki er hægt að dæma liðið á þessum leik enda varla við miklu að búast eftir eina æfingu saman.Reykjanesmótið er ætlað til að menn fá æfingu fyrir komandi átök í deildinni og fengu allir leikmenn að spreyta sig í gær.

Sama má segja um dómarana sem voru ekki með á nótunum í gær og gerðu leiðinlegan leik enn leiðinlegri með hræðilegri dómgæslu. Það bitnaði þó jafn á báðum liðum.