Heil 6 lið frá Keflavík í úrslitum yngri flokka um helgina
Um helgina fara fram úrslit yngri flokka á Íslandsmótinu í körfuknattleik 2014. Leikið verður í Smáranum, Kópavogi en umsjón úrslitakeppninnar verður í höndum Breiðabliks.
Það er gaman að segja frá því að Keflvíkingar eiga heil 6 lið í úrslitum þetta árið en leiknir verða níu úrslitaleikir í 9. flokki upp í unglingaflokka drengja og stúlkna. Dagskráin hefst á slaginu 10, á morgun laugardag þegar Keflavík og Ármann leika til úrslita í 9. flokki kvenna.
Glæsileg umgjörð verður í kringum leikina þar sem framtíðarstjörnur körfuboltans munu leika spennandi leiki þar sem allt verður undir.
Allir keflvískir körfuknattleiksunnendur eru hvattir til að líta við í Smáranum um helgina og styðja okkar lið en allir leikirnir verða jafnframt sýndir beint á netinu á breidablik.is
Áfram KEFLAVÍK