Fréttir

Körfubolti | 12. febrúar 2004

Heimasíða Keflavíkur valin heimasíða mánaðarins

KKÍ hefur haft þann vana að heiðra eina heimasíðu á mánuði fyrir að standa sig vel. Nú var komið að okkur og þökkum við fyrir það. Við vitum hins vegar vel að heimasíðan hefur bæði kosti og galla. Við höfum staðið okkur vel í fréttum af meistarflokkum okkar og auk þess birtast hér oft pælingar og hugleiðingar um málefni sem tengjast körfuboltanum. Evrópukeppninni hefur verið gerð afar góð skil, enda mikið metnaðarmál félagsins. Spjallið hefur líka verið ansi líflegt og all flestir netverjar hafa verið málefnalegir og skemmtilegir. Aftur á móti megum við bæta okkur á nokkrum sviðum. Fréttir af yngri flokkunum eru t.d. alls ekki nógu margar, eins mættu vera hér ítarlegri upplýsingar um leikmenn o.fl. En til að bæta síðuna þurfa fleiri að koma að henni, bæði þjálfarar og aðrir áhugamenn. Vonandi verður síðan okkar betri með tímanum, en hlutir gerast ekki af sjálfu sér, t.d. myndi það breyta miklu ef einn aðili fengist alfarið til að sjá um yngri flokkana. Við gerum okkar besta.