Fréttir

Körfubolti | 7. nóvember 2002

Heimasíðan í loftið á ný - LOKSINS!

Loksins, loksins eru tæknilegu erfiðleikarnir að baki og heimasíðan komin í loftið á ný. Töluverð vinna hefur farið í ýmis konar hönnun og uppsetningu, en eins og lesendur sjá strax þá er heimasíðan enn sem stendur "hálf tóm".

Við munum þó reyna að vera dugleg að setja inn efni, líkt og undanfarin ár, svo að síðan geti orðið vettvangur körfuboltaumræðunnar í Keflavík.

Ekki verður spjall á boðstólum til að byrja með, en við bendum (a) á þáttinn "Aðsent efni" og (b) á opinberar spjallsíður KKDÍ og Sportsins fyrir þá sem áhuga hafa.

Með von um góðar viðtökur,

Stjórnin