Heimasíðan leitar að fleiri "pennum"
Það kostar töluverða vinnu að halda úti sæmilega virkri heimasíðu. Keflvískir körfuboltamenn hafa lagt sig fram við að láta vita af sér og taka þátt í körfuboltaumræðunni á meðan leiktíð stendur, en svo hafa menn tekið því rólega yfir sumarið. Enda er ágætt að hvíla sig á körfunni á sumrin, þó hún sé númer eitt á veturna.
Og nú fer bráðum að hausta og leikmennirnir okkar eru farnir að hlaupa og skjóta og Siggi þjálfari reynir að koma þeim í form. Það stendur jú mikið til í vetur, meira en venjulega.
Heimasíðan vill líka taka framförum og nú ætlum við að fjölga "pennum" eða bloggurum sem taka með okkur þátt í að skrifa hvað sem þeim dettur í hug um körfubolta. Tveir góðir hafa þegar bæst í hópinn, þeir Guðmann Kristinsson sem hefur séðu um heimasíðu knattspyrnunnar með fyrirtaks árangri, og Rúnar I Hannah sem var þekktur af skæðum körfuboltapistlum frá Danmörku og fleiru hér um árið.
Stjórnin mun ekki láta sitt eftir liggja og vonandi verða þjálfarar yngri flokkanna duglegir við að koma inn á síðuna efni um sína flokka.
Að síðustu, við viljum fjölga í hópi skríbenta, þannig að ef einhver körfuboltageggjari "þarna úti" vill taka þátt með okkur . . . þá bara að hafa samband.
Stjórnin