Heimavöllurinn stóðst áhlaupið í oddaleiknum: Keflavík 98 - Tindastdóll 96
Oddaleiknum gegn Tindastóli í 8-liða úrslitunum verður ekki gleymt í bráð. Þvílík spenna! Hvað svo sem segja má um gæði körfuboltans hjá heimamönnum, má altént segja að áhorfendum í íþróttahúsinu og heima í stofu hafi verið boðið upp á skemmtun af bestu gerð. Sem betur fer fyrir Keflavík datt sigurinn okkar meginn en ekki er hægt að segja að annað liðið hafi verið betra en hitt, svo mjótt var á mununum. Lokasekúndurnar voru æsispennandi, Keflavík hafði fengið knöttinn í stöðunni 96-96 þegar um 40 sekúndur lifðu leiks, en boltinn tapaðist vegna slakrar sendingar inn í teig. Stólarnir fengu boltann en gerðu sig líka seka um mistök, svo aftur fékk Keflavík tækifæri á að reyna. Þegar um 8 sek eru eftir þá fær Magnús galopið 3ja stiga skot en nær ekki að setja það niður. En Fannar var rétt staðsettur og hirti frákastið og setti boltann í körfuna, staðan 98-96. Tindastólsmenn geystust upp völlinn og leikurinn stöðvaðist eftir nokkrar sekúndur. En leikklukkan hafði ekki farið í gang svo þeir voru látnir endurtaka innkasti undir körfunni. Þeir höfðu því 6,5 sek til að skora og geystust upp völlinn og Clifton Cook braust upp að körfunni en náði ekki að skora. Stólarnir áttu innkast undir körfunni en það bar ekki árangur, enda tíminn naumur. Sigurinn var okkar og Keflavík komið í undanúrslit gegn Grindavík.
Óhætt er að segja að leikur Keflavíkurliðsins hafi lengst af valdið vonbrigðum í dag, ef undan er skilin frammistaða Derricks Allen sem lék eins og hetja allan leikinn, skoraði 38 stig og tók 14 fráköst. Hann hélt liðinu gangandi meðan lítið annað var að gerast. Vörnin var lengstum afar slök og Tindastólsmenn gátu valsað um hana eins og þeim sýndist og fengu yfirleitt frí skot í hverri sókn. Þó verður að viðurkennast að Clifton Cook átti hreint svakalegan leik og virtist geta skorað úr alls konar færum, hreint magnaður leikmaður. Sóknarleikur Keflavíkurliðsins var ekki hraður og beittur eins og við eigum að venjast og t.d. voru aðeins skoraðar 3 3ja stiga körfur, allar í 4ða leikhluta. En kosturinn við sóknina var að liðið náði að nýta yfirburði Derrick undir körfunum og hann fékk mikið að moða úr.
Stólarnir byrjuðu betur og leiddu mest allan tímann, í hálfleik var munurinn 10 stig, 44-54 og vonuðust menn eftir einum góðum Keflavíkurkafla í byrjun seinni hálfleiks. En ekki gerðist það, því það voru gestirnir sem bættu við forystuna sem varð mest 16 stig, 44-60. Þá var nú farið að fara um ansi marga stuðningsmenn Keflavíkurliðsins. En nú fóru hlutirnir loks að gerast og voru það þeir Arnar Freyr Jónsson og Nick Bradford sem tóku sviðið. Arnar virtist ekki láta mótlætið fara í taugarnar á sér og lék af mikilli áræðni og sótti grimmt inn í vörn gestanna og opnaði hana hvað eftir annað. Nick hafði verið arfaslakur í fyrri hálfleik, fór loks að sækja að körfunni og skoraði mikilvæg stig í síðasta fjórðungi, ekki síst tvær stórar 3ja stiga körfur. Lokakaflanum hefur þegar verið lýst, en það var Fannar réttur maður á réttum stað.
Fyrir utan Derrick, Nick og Arnar var liðið ekki að leika eins vel og það getur, t.d. var hittnin slök og vörnin agaleg. Hins vegar voru fráköstin mjög góð, ekki síst sóknarfráköstin, en þau gáfu ansi mörg stig í þessum leik.
Gunnar Einarsson heldur áfram að meiða sig, nú varð hann fyrir því að togna aftan í læri og bætist það við allt það sem fyrir er. Hann lék því ekkert með í seinni hálfleik. Óvíst er um framhaldið hjá Gunnari, en meiðslasaga hans undanfarnar vikur er að verða lygasögu líkast. Jón Hafsteins hafði verið mjög sprækur en fékk mikið högg á mjöðmina um leið og hann kom inn á í seinni hálfleik og þurfti því að fara strax aftur útaf, ekki er ljóst með hans mál á þessari stundu. Sverrir og Magnús hafa átt betri daga og Davíð og Halldór komu ekki við sögu að þessu sinni.
Þessi rimma var erfið og munurinn á heimavelli minni en Keflvíkingar hefðu mátt eiga von á. Því má segja að töluverð tækifæri séu fyrir Keflavíkurliðið að styrkjast fyrir næstu átök, en þau eru gegn Grindvíkingum og hefjast líklega á laugardaginn.
Við þökkum Tindastóli fyrir hörkuleiki.