Heimsóknir aldrei verið fleiri - um 18 þúsund á einum mánuði
Gaman er að fylgjast með hve margir "líta við" á heimasíðu okkar. Við setjum öðru hverju teljara á síðuna sem telur fjölda "heimsókna" en ekki fjölda gesta, þannig að ef einhver fer tvisvar inn á heimasíðuna sama daginn, þá eru yfirleitt báðar heimsóknrnar taldar. Þó eru ekki taldar "flettingar", þ.e. ef gestur fer inn á síðuna og flakkar um hana, þá telst það bara sem ein "heimsókn".
Talning okkar fyrir síðustu þrjá mánuði hefur verið svona:
- 11. nóv. - 10. des.: um 12 þúsund
- 11. des. - 10. jan: um 13 þúsund
- 11. jan - 10. feb: um 18 þúsund
Takk fyrir það kæru netverjar, svona tölur hjálpa okkur að halda þessu gangandi, það eru greinilega margir að fylgjast með. Þó er vonlaust fyrir okkur að átta okkur á fjölda gesta, því sumir fara örugglega ansi oft inn á síðuna en aðrir kíkja kannski endrum og sinnum.