Fréttir

Körfubolti | 15. febrúar 2003

Helgi Jónas skaut Keflavík í kaf og nánast tryggði Grindavík Deildarmeistaratitilinn

Leikurinn í gærkvöldi var æsispennandi fram á næst síðustu mínútu og frábær skemmtun fyrir áhorfendur, enda hraðinn mikill og mikið um flott tilþrif. Keflavík hafði reyndar yfirhöndina mest allan tímann, en villuvandræði Damons og Eds gerðu gæfumuninn þar sem þeir gátu ekki beitt sér á fullu í vörninni. Það losnaði um Grindvíkinga sem gengu á lagið og skoruðu grimmt. Þar fór fremstur Helgi Jónas sem skoraði öll sín 25 stig í seinni hálfleik og þar af 20 í síðasta fjórðungi. Helgi fór hreinlega á kostum og skoraði úr langskotum sem voru næstum fáránleg.

Keflavíkurliðið réð ekkert við Helga, en hann fékk auk þess aðstoð frá Darryl Lewis sem reyndist okkur erfiður, líkt og áður í vetur. Damon virtist í upphafi hafa Darryl í hendi sér, en þegar Damon fékk 3ju villuna þurftu aðrir að gæta Darryls, en réðu ekki við hann, enda skoraði Darryl 40 stig. Gulli og Páll Axel skelltu líka niður bombum og tóku þátt í háu stigaskori heimamanna, en leikurinn endaði 103-92.

Damon átti stórleik að vanda í Röstinni og skoraði 41 stig, flest með gegnumbrotum. Hann var einnig grimmur í vörninni framan af og hélt Darryl í skefjum. En eftir 3ju villuna í fyrri hálfleik dró verulega af honum í varnarleiknum. Ed Saunders átti prýðilegan leik, tók mikið af fráköstum og nýtti færin sín vel, þrátt fyrir að Gummi Braga hengi á honum líkt og frakki mest allan leikinn. Merkilegt hvað Guðmundur fær að leika grófa vörn undir körfunni. Ed skoraði 18 stig og hefði að ósekju mátt fá boltan meira, en stundum var örðugt um sendingar. Jonni átti ágætan leik, tók m.a. 11 fráköst, en hefði mátt nýta færin betur.

Bakverðirnir okkar brugðust illa í gær, ef Falur er undanskilinn. Falur átti 4ra skota syrpu í lok 3ja leikhluta sem var stórskemmtilegt að horfa á. Með fjórum þristum í röð hélt Falur okkur inní leiknum þegar Grindjánar gerðu sitt fyrsta áhlaup. Þá var Ed Saunders kominn útaf með fjórar villur og veiktist liðið við það. En gallinn á sóknarleiknum var sá að alllar hinar stórskytturnar, Gaui, Maggi og Gunni, hittu ekkert í leiknum, þrátt fyrir mörg opin færi. Bakverðirnir (að Fal undanskyldum) hittu aðeins úr 7 af 32 skotum sínum í leiknum sem er afleitt. Af þessum sökum gat Grindavík fallið niður í svæðisvörn og komist upp með það.

Þetta var í raun munurinn á liðunum í gær. Grindavík negldi niður þristum en ekkert gekk hjá okkar mönnum. Grindavík nýtti 12 af 32 (38%) en Keflavík aðeins 6 af 24 (25%). Eins var vítanýtingin slök, aðeins 7 víti af 15 rötuðu rétta leið sem er 47% nýting (skelfilegt).

Líklegast hefði vörnin þurft að vera grimmari, því við skoruðum 92 stig á heimavelli Grindavíkur sem er prýðilegt. En tapið kom gegn Grindavíkurliði sem var í svaka stuði og átti sigurinn skilið. Okkar menn taka þessu af jafnaðargeði, safna kröftum og reyna nú að ná næst efsta sæti deildarinnar, því það efsta er frátekið.

Næsti leikur er gegn Valsmönnum á mánudaginn kl. 19.15.