Hera syngur í hálfleik
Keflvíkingar vilja gera Evrópuleikinn að alls herjar skemmtun fyrir áhorfendur. Þegar hefur verið minnst á glæsilegt ljósashow sem kyndir upp í mannskapnum fyrir leikinn og skapar rétta stemmingu.
En þar að auki hefur stjórnin fengið hina stórglæsilegu söngkonu Heru Hjartardóttir, sem sló í eftirminnilega í gegn á árinu og hlaut m.a. íslensku tónlistarverðlaunin sem besta söngkona síðasta árs, til að koma til Keflavíkur og flytja sína tónlist fyrir áhorfendur í hálfleik.
Okkur þykir sérlega gaman að frá svona frábæran listamann í heimsókn og vonumst eftir því að hún eigi eftir að gera frábært kvöld enn skemmtilegra. Stúlkan, sem er eingöngu tvítug að aldri, var að gefa út nýja plötu á dögunum og mun eflaust leika llag eða ög af henni.
Hera mun að öllum líkindum taka tvö eða þrjú lög í hálfleik, um leið og leikmenn ganga í búningaklefa sína og hlusta á ræður þjálfarana.