Hermann Helgason kosinn formaður körfuknattleiksdeildarinar
Í kvöld var haldinn aðalfundur körfuknattleiksdeildarinnar. Fráfarandi formaður, Hrannar Hólm, flutti skýrslu stjórnar og fór yfir nýliðna leiktíð. Þar á eftir var fjárhagsstaða deildarinnar kynnt, en eins og áður hefur verið greint frá var reksturinn afar góður og staða mála því með besta móti. Rekstrarafgangur var um 3 millj. kr. sem nýtist m.a. til greiðslu skulda og kaupa á nauðsynlegum búnaði. Að þessu loknu fór fram stjórnarkjör. Fyrst var Hermann Helagson einróma kjörinn formaður án mótframboðs eða mótatkvæða. Þar næst voru eftirtaldir átta stjórnarmenn kjörnir í stjórn, en þeir munu skipta með sér störfum á fyrsta stjórnarfundi:
- Birgir Már Bragason
- Einar Skaftason
- Guðsveinn Ólafur Gestsson
- Jón Guðmundsson
- Kristján Guðlaugsson
- Rúnar Georgsson
- Særún Guðjónsdóttir
- Sigurður B Magnússon (kemur nýr inn)
Í varastjórn voru kjörnir:
- Brynjar Hólm Sigurðsson (kemur nýr inn)
- Gunnar Jóhannsson
- Hrannar Hólm
- Jón Ben Einarsson
- Þorgrímur Árnason
Hermann tekur við af Hrannari (mynd fengin að láni hjá www.vf.is)
Eins og sjá má er stjórnin vel mönnuð og mikil reynsla um borð. M.a. eru fjórir formenn, núverandi og fyrrverandi, í stjórninni, sem hlýtur að teljast frekar merkilegt.
Í kjölfar stjórnarkjörs verður skipað í unglingaráð og kvennaráð á næstu dögum og verður greint frá því á heimasíðunni.
Að loknu stjórnarkjöri fóru fram almennar umræður um deildina meðal fundargesta. Fundarstjóri var formaður félagsins, Einar Haraldsson.
Heimasíðan vill óska nýjum formanni og nýjum stjórnarmönum til hamingju með góða kosningu og vonar að stjórninni takist sem fyrst að finna nýjan vefstjóra, því sá sem er í því starfi núna hefur formlega sagt því lausu . . :) Vefstjóri vill einnig skora á unglingaráðið að efla heimasíðuskrif í tengslum við yngri flokka, því yngri kynslóðin er með dyggustu lesendum síðunnar.