Herrakvöldið verður laugardaginn 28. des.
Í fyrra ákvað stjórn körfuknattleiksdeildarinnar að prófa að halda herrrakvöldið milli jóla og nýárs. Það tókst glimrandi vel svo ákveðið hefur verið að endurtaka leikinn. Eini munurinn er sá að nú verður herrakvöldið að öllu leyti glæsilegra!
Leikmenn og stjórnarmenn eru um þessar mundir að selja miða á herrakvöldið en dagskráin verður sem hér segir:
- Hófið hefst kl. 20
- Örn Garðarson sér um matinn - sjávarfang
- Viktor Kjartansson er veislustjóri
- Gísli Einarsson er ræðumaður kvöldsins
- 82-liðið eru heiðursgestir kvöldsins
- Leikir og ýmis skemmtiatriði (sum óvænt)
- Tónlistaratriði
- Og fleira . . .
- Þar að auki verður boðið upp á gos og öl með matnum og eftir matinn
Ef þú ert alvöru maður, þá mætir þú á staðinn, svo einfalt er það!