Hin fjögur fræknu byrja kl. 18.30 í kvöld
Nú er komið að fyrstu alvöruleikjum vetrarins! Körfuboltaunnendur taka þessum leikjum vonandi fagnandi því sex ára saga hinna fjögurra fræknu segir okkur að leikirnir verða rosalegir. Úrslitaleikirnir hafa reyndar stundum verið ójafnir (minnumst bæði 38 stiga sigurs og 40 stiga taps Keflavíkurliðsins), en undanúrslitin hafa verið með því besta sem íslenskur körfubolti hefur boðið upp á á undanförnum árum.
Kl. 18.30 mæta nýliðar Hauka reynsluboltunum úr Grindavík sem aldrei hafað fagnað sigri og þar á eftir, kl. 20.30 taka heimamenn á móti KR. Keflavík er sigursælasta lið keppninar, hefur alls unnið þrisvar sinnum, en KR-ingar hafa enn ekki náð að sigra. Athyglisvert er að Kef og KR hafa mæst fjórum sinnum í keppninni og ávallt hefur Kef haft betur.
Við vekjum athygli á frábærri tölfræðisamantekt Óskars Ó Jónssonar um hin fjögur fræknu sem birtir eru á heimasíður KKÍ. Þeir eru:
Ekki þarf að koma á óvart að Keflavík trónir víða á toppi listanna og ekki kemur heldur á óvart að 700 leikja maðurinn, Guðjón Skúlason, hefur gert flestar 3ja stiga körfurnar í keppninni.
Rétt er að vekja athygli Keflvíkinga á því að þótt leikirnir séu haldnir í Keflavík þá eru það félögin fjögur og KKÍ sem standa að framkvæmdinni og því gilda ekki kort stuðningsmanna á leikina.
Verð á leikina tvo í kvöld er 1000 kr. fyrir fullorðna, en 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri. Yngri börn fá frían aðgang.
Áhorfendastæðum verður skipt í tvennt, bæði uppi og niðri svo að öðru megin verða Haukar og Keflavík og hinu megin verða Grindavík og KR. Við vonum að það valdi ekki vandræðum.
Stefnt verður að því að gera áhorfendum ýmislegt til gamans í leikhléum, t.d. verður keppt um Kjörís-inneignir, auk þess sem sýndur verður körfubolti yngstu krakkanna og fimleikastúlkur gætu komið við sögu. Einnig verður Guðjón Skúlason heiðraður fyrir langan og farsælan feril og 700 leiki með félaginu.
Nóg hefur verið sagt, nú er “action” á dagskránni. Við vonum að hin fjögur fræknu standi undir nafni og bjóði áhorfendum upp á frækilega baráttu og frábæra skemmtun.
Áfram Keflavík!