Fréttir

Körfubolti | 21. nóvember 2003

Hin fjögur fræknu keppa um HÓPBÍLA-bikarinn föstudag og laugardag

Fyrsti hápunktur íslensku körfuboltaleiktíðarinnar hefur undanfarin átta ár verið keppni hinna Fjögurra Fræknu, en svo nefnist fjögurra liða úrslitakeppni fyrirtækjabikarsins svokallaða sem nú heitir HÓPBÍLA-bikarinn. Við Keflvíkingar höfum verið einkar sigursælir í þessari keppni og unnið hana fjórum sinnum. Hinir þátttakendurnir í þetta skitpið, Grindavík, Tindastóll og Njarðvík hafa unnið keppnina einu sinni hvert félag. Leikirnir í þessari keppni hafa oft á tíðum verið hreint frábærir og skemmst er að minnast úrslitaleiksins í fyrra þegar Damon Johnson tryggði Keflvíkingum titilinn með 3ja stiga körfu á lokasekúndu leiksins í stórskemmilegum og spennandi leik. Hér má lesa um leikinn frá því í fyrra.

Keflavík hefur leikið flesta leiki allra félaga í keppni þessari, alls 12 og hefur unnið 10 þeirra. Guðjón Skúlason hefur einn leikmanna tekið þátt í öllm þeim leikjum. Óskar Ófeigur Jónsson tölfræði-gúrú hefur tekið saman sögu keppninnar í pistli á heimasíðu KKÍ. Pistilinn má finna hér. Leikirnir verða leiknir í Laugardalshöllinni og hefst leikur Njarðvíkur og Grindavíkur kl. 18.30 og strax að þeim leik loknum, kl. 20.15, mætast Keflavík og Tindastóll.

Lekur Njarðvíkur og Grindavíkur getur orðið mikill háspennuleikur. Bæði lið hafa leikið vel í vetur, Grindavík hefur enn ekki tapað leik, þrátt fyrir að Helgi Jónas Guðfinnsson hafi lítið sem ekkert leikið með sökum meiðsla. Óvíst er með þátttöku Helga á þessari stundu að sögn Friðriks Inga þjálfara Grindvíkinga. Njarðvíkingar hafa náð miklum styrk eftir að Brenton gekk aftur til liðs við þá og meðal annars hafa þeir unnið Keflavík einu sinni og KR þrisvar. Það sem einkennir þessi lið öðru fremur geysiöflugt byrjunarlið. Hjá Grindavík eru Helgi (þegar hans nýtur við) og Darryl "hinn magnaði" Lewis bakverðir, Páll sAxel tórskytta og Dan Trammel framherjar og Guðmundur Bragason miðherji. Guðmundur er ekkert unglamb lengur en leikur geysivel um þessar mundir, hefur t.d. skorað 11 stig og hirt 11 fráköst að meðaltali í deildinni í vetur. Darryl, Páll, Dan og Gummi skora að meðaltali um 70 af 87 stigum liðsins. Dan Trammel býr yfir svakalegum sprengikrafti og verður gaman að sjá hvort hann nái nokkrum troðslum í leiknum.

Njarðvíkurliðið er hávaxið og beitt, Brenton og Brandon frábærir bakverðir og miklar skyttur, og Páll, Friðrik og Egill mynda líkegast hávöxnustu framvarðarsveit sem sést hefur í háa herrans tíð, enda 2,02, 2,04 og 2,14 að hæð piltarnir! Fjórmenningarnir Brenton, Brandon, Páll og Friðrik skora að meðaltali um 75 stig af þeim 90 sem Njarðvík hefur gert í vetur. 3ja stiga nýting Njarðvíkinga hefur verið með eindæmum góð í vetur og hafa félagarnir Brandon og Brenton ásamt Guðmundi Jónssyni, sem er framtíðarleikmaður sem leikið hefur leikið afar vel í vetur, skorað úr 56 af 124 3ja stiga tilraunum sem er um 45% hittni. Gríðarlega öflugt vopn sem losar einnig um turnana inn í teig. Skytturnar hinu megin eru heldur ekki slakar, þó ekki hafi hittnin verið jafn góð í vetur, Páll Axel og Darryl sjá um skotin og getur sérstaklega Páll dottið í feyknastuð og verið illviðráðanlegur.

Sumsé, Suðurnesjaslagur sem mun eflaust bjóða upp á topp-körfubolta frá upphafi til enda. Við spáum því hér að varnarleikurinn muni gera útslagið því liðin passa nokkuð vel saman. Mikilvægt verður að gefa lítinn frið í langskotum því það getur orðið dýrkeypt. Okkur sýnist að Njarðvíkingar hafi öflugra vopnabúr og muni fara með sigur af hólmi í hörkuleik.

Leikur Keflavíkur og Tindastóls verður einnig spennandi. Reyndar vann Keflavík auðveldan sigur fyrir tveimur dögum, en það var á heimavelli. Kristinn Friðriksson sparaði krafta sína og ætlar að dúndra nokkrum bombum á sína gömlu félaga, ef við þekkjum hann rétt. Clifton getur verið afar öflugur og Nick Boyd er sterkur undir körfunum. Okkar menn eru hins vegar með mun meiri breidd og ættu að geta keyrt upp hraðan og haldið honum gangandi allan leikinn. Lykilatriðið verður hugarfarið og grimmdin. Evrópukeppnin tekur vissulega sinn toll, en hér höfum við titil að verja og allir verða að leggjast á eitt. Gallinn í okkar leik hefur stundum verið sá að leyfa andstæðingum að valsa inn og út úr vörninni langtímum saman, en slíkt má ekki gerast í þessum leik, því þá komast Stólarnir í stuð og leikurinn verður erfiður. Keflavíkurliðið er ekki jafn háð 3ja stiga skotum sínum og oft áður, enda er Derrick hreinræktaður "inside" leikmaður sem eykur á vopnabúr okkar. En skytturnar eru margar og góðar og ef menn eru rétt innstilltir munu menn fá mörg góð færi. Eitt aðal vopn Keflavíkur er pressuvörnin og með leikmenn eins og Sverri Þór, Nick og Jonna getur verið erfitt fyrir andstæðinginn að kljúfa hana.

Keflavík hefur alla möguleika á að komast í úrslit, en menn verða að gefa allt í leikinn frá fyrstu mínútu. Ef þeir gera það ættu sigurlíkur okkar að vera töluverðar.

Ef okkar spádómar ganga upp munu því nágrannarnir úr Keflavík og Njarðvík mætast í úrslitum, þó vissulega geti allt gerst. En skoðanakönnun heimasíðunnar leiðir í ljós að flestir telja einmitt að þau félög muni berjast um titilinn á laugardag. Sjáum til . . . .