Hin fjögur fræknu leika í Keflavík
Hin fjögur fræknu mætast í Keflavík
Á dögunum var tilkynnt að keppni hinna fjögurra fræknu myndi fara fram í Keflavík þetta árið, nánar tiltekið föstudaginn og laugardaginn 22. og 23. nóvember. Ástæða þess að Keflavík varð fyrir valinu var meðal annars að stóru húsin, Höllin, Smárinn og Haukahúsið voru upptekin.
Því var úr vöndu að ráða og mótanefnd taldi líklega að tryggja mætti góða aðsókn og framkvæmd úrslitanna í Keflavík.
KR-ingar voru ekki alls kostar sáttir við þessa hugmynd mótanefndar og mótmæltu því að keppa við Keflvíkinga á þeirra heimavelli. Auðvelt er að skilja afstöðu KR-inga og þar fyrir utan gerir reglugerð um “fyrirtækjabikar” (sem nú heitir Kjörískeppni) ráð fyrir því að hin fjögur fræknu skuli keppa á hlutlausum velli, helst Laugardalshöll.
Í dag kl. 17 var fundur meðal forráðamanna þátttakandi félaga og þar fékkst farsæl lausn í málið þar sem félögin fjögur lögðu til í sameiningu að leikið yrði í Keflavík.