Hjörtur er viðbeinsbrotinn og verður frá æfingum í fjórar vikur
Strax í upphafi leiks í gær rakst Brandon Woudstra, leikmaður Njarðvíkur, harkalega á Hjört Harðarson þar sem þeir hlupu báðir eftir boltanum sem var á leiðinni út af undir körfu Keflavíkur. Brandon rakst á öxl Harðar með þeim afleiðingum að hann viðbeinsbrotnaði. Strax var farið með Hjört á sjúkrahús og þar var þessi úrskurður kveðinn upp. Hjörtur mun ekki geta æft næstu fjórar vikurnar og ekki er ljóst hve lengi hann verður frá keppni. Þetta er slæmt fyrir Hjört og Keflavíkur í þeirri orrahríð sem framundan er, t.d. eru fjórir leikir eftir í Evrópukeppni fram að jólum og nokkuð ljóst að Hjörtur mun missa af þeim öllum.
Við óskum Hirti alls hins besta og vonumst eftir að sjá hann fyrst aftur í Keflvíkurbúningnum.