Hjörtur Harðarson til Grindavíkur
Hjörtur Harðarson skrifaði í gær undir samning við Grindavík. Hjörtur sem er 33 ára leikstjórnandi hefur spilað 50 landsleiki á ferlinum og orðið 6. sinnum Íslandsmeistari með Kefavík. Hjörtur spilaði þó aðeins 8 deildarleiki með okkur á síðasta tímabili en tók að auki þátt í Evrópukeppninni með okkur. Hjörtur hefur áður leikið með Grindavík ( 93-96 ) og varð Íslandsmeistari með þeim árið 1996.
Við hjá Keflavík þökkum Hirti fyrir samstarfið og vonum að honum gangi sem best hjá sínu nýja liði.