Hjörtur kemur inn í liðið á ný
Keflavíkurliðið leikur næsta leik án Arnar Freys sem er í leikbanni eins og kunnugt er. Í hans stað kemur Hjörtur Harðarson inn í liðið eftir nokkurt hlé, en Hjörtur hefur verið fjarverandi sökum veikinda. Hann er allur að hressast og er klár í slaginn á morgun. Það er gott að vita af því að slíkur reynslubolti skuli koma inn í liðið.
Að öðru leyti er liðið skipað sömu mönnum og síðast, þeim Sverri, Magnúsi, Nick, Fannari, Derrick, Gunnari E, Jóni Nordal, Halldóri og Gunnari Stef.
Gera má ráð fyrir óbreyttu Snæfellsliði, nema hvað Dickerson er í leikbanni. Líklega mun Hafþór taka stöðu hans í byrjunarliðinu.
Allir vita hvað er í húfi í þessum leik og Snæfell fær ekki fleiri möguleika, ef þessi verður ekki nýttur. Því verður að reikna með þeim dýrvitlausum frá fyrstu mínútu. Þeir vita að það er erfitt að sækja sigur í Sláturhúsið. Snæfellingar munu eflaust reyna að stjórna hraðanum betur en í síðustu tveimur leikjum, en þá fékk Keflavík að keyra upp hraðann. Snæfell kann betur við sig í hægari leikjum þar sem reynir á vörnina undir körfunum. Segja má að leikurinn á morgun snúist ekki síst um það hvort liðið nái að stjórna hraðanum.
Keflvíkingar finna nú lykt af meistaratitlinum, en vita mæta vel að enn er ekkert í höfn. Fyrst þarf að vinna þrjá leiki. Menn eru fullir sjálfstrausts og hafa hvílt sig s.l. daga. Falur og Guðjón munu eflaust setja allt í botn hjá Keflavíkurliðinu frá upphafi og verður gaman að fylgjast með fjörinu.
Ljóst er að mikill hiti verður í Sláturhúsinu á morgun og vonandi ná okkar menn enn einum topp leiknum á heimavelli.
ÁFRAM KEFLAVÍK!!!