Hjörtur lætur af störfum
Hjörtur Harðarson hefur látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur. Ástæðan er ágreiningur milli leikmanna og þjálfara um starfsaðferðir en Hjörtur bauðst til að víkja til að leysa þann ágreining. Tímasetningin er ekki ákjósanleg er þó er sátt um aðgerð þessa meðal leikmanna. Undir stjórn Hjartar hefur Keflavíkurliðið unnið alla þá fjóra titla sem í boði hafa verið í vetur og þakkar stjórnin Hirti góð störf. Engu að síður urðu leiðir að skilja. Sem stendur er Keflavík í undanúrslitum Íslandsmótsins og leikur oddaleik gegn Grindavík á morgun. Sigurður Ingimundarson mun stýra liðinu til loka Íslandsmótsins.