Fréttir

Körfubolti | 27. nóvember 2003

Hljóðkerfið klikkaði :(

Því miður tókst kynning leiksins í gærkvöldi ekki eins vel og til stóð. Ástæðan er sú að hátalararnir okkar "klikkuðu" óvænt báðir á sama tíma. Eftir að það komst í ljós vannst ekki nægur tími til að bregðast við og laga þá eða fá nýja lánaða. Því vantaði kraft í kynninguna og múskíkina, enda var allt "sound" úr græjunum hálf bjagað og bara versnaði eftir því sem meira var hækkað. Þetta var leiðinlegt og því skapaðist ekki sú stemming í ljósashowinu sem á að vera. En allt getur gerst í beinni útsendingu eins og maðurinn sagði, og nú verða græjurnar settar í lagfæringu til að svona lagað endurtaki sig ekki. En sem betur fer var ekkert bjagað við leik okkar manna . . . .:)