Fréttir

Körfubolti | 6. apríl 2003

Hljómsveitin “Á MÓTI SÓL” hitar upp fyrir leikinn á morgun

Gert hafði verið ráð fyrir að Birgitta Haukdal myndi syngja fyrir Keflvíkinga og Grindvíkinga í Sláturhúsinu á morgun þegar annar leikur úrslita Íslandsmótsins fer fram, en það breyttist á síðustu stundu þegar Birgitta lét þau boð berast að hún væri upptekin við annað.

En körfuknattleiksdeildin hafði lofað tónleikum og þá var leitað til hljómsveitarinnar stórskemmtilegu og kröftugu úr Hveragerði, “Á móti sól” og brugðust þeir við með litlum fyrirvara eins og sannir íþróttamenn.  Þrír úr hljómsveitinni munu mæta til Keflavíkur og halda “míní” tónleika kl. 18.30 og síðan munu þeir aftur spila í hálfleik. Strákarnir eru öflugir og hressir rokkarar og eiga mörg flott lög í handraðanum. Munu þeir eflaust koma áhorfendum í stuð fyrir leikinn.

Athugið að húsið opnar kl. 18.00.