Hlynur Bæringsson og stuðningsmenn Keflavíkur
Lesa mátti í Fréttablaðinu í morgun að Hlyni Bæringssyni, leikmanni Snæfells, hefðu borist óskemmtilegar hótanir og ögranir með sms-skilaboðum og í talhólf.
Stjórn körfuknattleiksdeildar fordæmir allar slíkar ögranir og hótanir og leggur áherslu á að þeir sem gera slíka hluti geta ekki talið sig til raunverulegra stuðningsmanna Keflavíkur. Svona hegðun er til skammar og á ekkert skylt við íþróttir. Stjórnin veit ekki, frekar en aðrir, hverjir standa á bak við þessi skilaboð, en skorar á viðkomandi að hætta slíku nú þegar og að halda sig fjarri körfuboltaleikjum.
Við sendum Hlyni góðar kveðjur vestur og hlökkum til að taka á móti honum og hans liði á laugardaginn.