Fréttir

Körfubolti | 7. desember 2003

Hópbílamót 2003

Nú er nýafstaðið enn eitt Hópbílamót Fjölnis í Grafarvogi.  Mótið fór fram helgina 29. og 30.nóv. og er fyrir drengi 10 ára og yngri en 11 ára og yngri stúlkur. Um 450 börn taka þátt í mótinu allstaðar af landinu, en lengst að komu þó krakkarnir frá Herði Patreksfirði.  Við Keflvíkingar höfum verið með lið á þessum móti frá upphafi eða síðustu 4-6 ár.  Um 110 flottir krakkar frá Keflavík, léku þarna í 14 liðum, um 70 körfuboltaleiki. Auk þess spila alla þessa leiki var gengin blysför á kvöldvöku, farið í bíó og í  sund, hámað í sig skúffuköku og mjólk fyrir svefninn og mótið endað svo á pizzuveislu. Eftir mót fóru iðkendur, liðstjórar og aðstandendur heim þreyttir en sáttir.  Allt gekk þetta slysalaust þó aðeins hafi vantað þetta árið upp á aðstoð fleiri foreldra.  Hér fylgja nokkrar myndir af iðkendum okkar á mótinu, en eflaust eru fleiri myndir til og er hægt að senda hópmyndir eða mjög góðar myndir á gudbrandur@mylluakkaskoli.is og reynum við að koma þeim inn á Keflavíkursíðuna.