Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 17. október 2011

Hópferðir Sævars styrkir Körfuknattleiksdeild Keflavíkur

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur skrifaði nýverið undir styrktarsamning við Hópferðir Sævars til tveggja ára. Með þessum samning hafa Hópferðir Sævars stimplað sig inn sem einn af stærri styrktaraðilum félagsins og er það mikið ánægjuefni fyrir KKD Keflavíkur á þessum síðustu og verstu. Auglýsing fyrirtækisins mun prýða karla- og kvennabúninga félagsins til næstu tveggja ára.

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur vill færa Hópferðum Sævars bestu þakkir fyrir samninginn.

 

Sævar Baldursson, framkvæmdastjóri Hópferða Sævars og Margeir Margeirsson, framkvæmdastjóri
KKD Keflavíkur handsöluðu samninginn.