Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 8. október 2005

Hörku leikur hjá Unglingaflokki karla

Unglingaflokkur karla spilaði sinn fyrsta leik í dag á sunnubrautinni.  Gestirnir, nýkrýndir Reykjavíkurmeistarar KR voru tilbúnir í hörkuleik.

Leikurinn fór skemmtilega af stað og haustbragurinn var fljótur að fara af okkar mönnum.  Leikurinn var nánast jafn allan fyrri hálfleikinn, en þegar að flautað var til hálfleiks var staðan 36-40 KR í vil.

KR-ingar komu mjög grimmir til leiks í síðari hálfleik og spiluðu stífa vörn á okkar menn sem gáfu örlítið eftir.  Þegar að tvær mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta voru KR-ingar komnir með vænlega stöðu 54-65, en þá tóku okkar strákar sig heldur betur saman í andlitinu, lokuðu vörninni og spiluðu mjög vel saman í sókninni.  Þegar að um ein mínúta var eftir af leiknum og staðan 74-66, héldu okkar menn eflaust að björninn væri unninn.  KR-ingar voru aldeilis ekki sammála, því þeir gerðu sér lítið fyrir og jöfnuðu leikinn á nokkrum sekúndum 74-74 og aðeins 14 sekúndur eftir af leiknum.  Þegar um 5 sekúndur voru eftir af leiknum skoraði svo Jón Gauti Jónsson ævintýralega sigurkörfu og úrslitin ráðin 76-74.

Stigaskor: Þröstur Leó Jóhannsson 20, Jón Gauti Jónsson 19, Magni Ómarsson 16, Páll Halldór Kristinsson 10, Elvar Þór Sigurjónsson 7, Adam Hart Fjeldsted 2 og Aron Rúnarsson 2.