Fréttir

Körfubolti | 7. október 2005

Hörkuleikir á Sunnudag

Á sunnudaginn fer körfuboltavertíðin af stað með tveim hörkuleikjum.  Þá mæta Íslandsmeistarar bikarmeisturum og fara leikirnir fram í Keflavík. Enda Keflavík Íslandsmeistari í bæði karla og kvenna flokki.:)

Ágóði af leiknum rennur til Foreldrafélags barna með axlarklemmu, en ágóði af meistaraleikjum er árlega gefinn til góðs málefnis. Á síðasta ári var það td. MND félagið sem naut góðs af.

Í fyrri leik dagsins mæta Keflavíkurstelpur bikarmeisturum Hauka. Sá leikur byrjar kl 17.00. Báðum liðum er spáð velgengni í vetur og er mjög vel skipuð svo búast má við hörkuleik.

Íslandsmeistarar Keflavíkur og bikarmeistarar Njarðvíkur mætast svo kl. 19.15.  Njarðvík hefur haft betur í leikjum á undirbúningstímabilinu og virtist vera í mun betri leikæfingu.  Jeb Ivey sem kom til þeirra frá Fjölni hefur átt frábæra leiki og virðist falla vel inn í liðið. 

Keflavík hefur verðið að æfa vel að undanförnu og nýju leikmennirnir Zlatko og Jason hafa verðið að komast betur inn í leik liðsins. Þjálfarar liðana lofa góðum leik þar sem ekkert verður gefið eftir, svo nú er bara að mæta í Sláturhúsið á Sunnudag, sjá góða leiki og styrkja í leiðinni gott málefni.