Fréttir

Körfubolti | 24. nóvember 2003

Hörkuleikur hjá stúlkunum í kvöld

Í kvöld mætast erkifjendurnir úr kvennaboltanum, Keflavík og KR. KR-liðið hafði veikst töluvert frá því í fyrra, en með tilkomu Katie Wolfe hafa þær endurheimt töluvert af fyrri styrk. Það kom bersýnilega í ljós í síðasta leik þeirra, þar sem þær unnu auðveldan sigur á ÍS, 71-55. Hildur Sigurðardóttir hefur farið á kostum í vetur og augljóslega munu þessar tvær reyna að gera Keflvíkingum lífið leitt í kvöld.

Keflavík tapaði fyrir KR í fyrstu umferðinni og á því harma að hefna. Stúlkurnar hafa þó leikið vel að undanförnu og við vonum að svo verði einnig í kvöld. Þjálfarinn er viðbeinsbrotinn en við skulum vona að hann geti þó leitt liðið til góðra afreka í kvöld.