Fréttir

Körfubolti | 30. október 2003

Hörkuleikur í kvöld gegn Snæfelli

Það hefur ekki oft gerst að þegar Keflavík mætir Snæfelli sé Snæfell ofar í töflunni en Keflavík. En þannig er staðan núna og bara eitt við því að gera, nefnilega vinna leikinn í kvöld og ná þannig Snæfelli að stigum og halda sig nálægt toppnum. Reyndar hefur Keflavík aldrei tapað fyrir Snæfelli í efstu deild frá upphafi og ekki til neins að taka upp á því núna :)

Snæfell er með hörku lið, sérstaklega "fyrstu fimm". Þar eru Corey Dickerson, snaggaralegur bakvörður sem er lipur og leikinn, en stundum full mikill einspilari. Auk hans er annar Kani, Dondrell Whitmore, en sá lék vel gegn Keflavík á dögunum í Meistarakeppni KKÍ, þar sem Keflavík hafði sigur í fjörugum leik. Tveir stórir strákar, Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson sjá um "inside" leikinn og síðan hafa Hólmararnir góða skyttu í Lýði Vignissyni. Breiddin er kannski ekki svo mikil hjá Snæfelli en baráttan ávallt til staðar. Þeir hafa byrjað vel í haust, unnið þrjá leiki af fjórum, meðal annars unnu þeir KR á útivelli.

Okkar menn hafa ekki byrjað vel og liðið hefur ekki enn náð að sýna hvað í því býr. Þó hefur Gunnar Einarsson verið að leika afar vel og Magnús Gunnarsson og Falur Harðarson hafa verið iðnir við að skora, báðir með um 14 stig að meðaltali. Derrick Allen hefur verið góður, skorað tæp 30 stig og hirt 13 fráköst að meðaltali, en félagi hans Nick Bradford hefur ekki enn náð almennilega að blómstra, þó tölurnar hans séu alls ekki slæmar, 18 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar að meðaltali.

Vonandi finnum við "taktinn" í kvöld og vonandi fáum við að sjá hraðan og skemmtilegan leik, en í slíkum leik njóta Keflvíkingar sín best, það vita allir.