Hörmung í Hafnarfirði . . . . strákarnir köstuðu frá sér unnum leik og töpuðu 90-88 - mætum Tindastóli í fyrstu umferð úrslitakeppninnar
Upphafsmínúturnar voru ansi hreint öflugar hjá okkar mönnum í kvöld, þeir komust m.a. í 11-1 og leiddu 20-25 eftir fyrsta leikhluta. Síðan kom langur slakur kafli en rétt fyrir lok fyrri hálfleiks náði Keflavík ágætum spretti. Staðan í hálfleik var 42-49 fyrir Keflavík. Seinni hálfleikur hófst síðan eins og sá fyrri, okkar menn léku við hvurn sinn fingur og náðu góðu forskoti. Við upphaf síðasta leikhluta var forystan nokkuð þægileg, þetta 6 - 10 stig, en lokakaflinn var alger hörmung, þar sem okkar menn hentu boltanum í burtu í sókninni og gerðu ekkert til að stöðva Haukana í vörninni, voru seinir aftur og léku slaka vörn. Haukarnir efldust allir og gengu á lagið. Í lokin gerði Whitney Robinson útslagið, þótt ekki hefði mikið á honum borið fram til þessa. Hann gerði 8 síðustu stigin fyrir Haukana, þar af tvær 3ja stiga körfur. Keflavík fékk boltann þegar 6 sekúndur lifðu leiks en klúðruðu málunum og töpuðu leiknum.
Stundum hélt maður að leikurinn væri algerlega í okkar höndum og segja má að Keflavík hafi kastað frá sér sigrinum í kvöld. Haukar léku lengst af afturliggjandi svæðisvörn en skyttur Keflvíkinga fundu sig ekki og engin ógn var að utan. Sóknarleikurinn varð staður og allur hraði fór úr leiknum. Eins var vörnin hriplek og Haukarnir virtust eiga greiða leið inn að körfunni hvað eftir annað. Með svona leik vinna menn ekki titla, svo mikið er víst. En við vitum að strákarnir geta mun betur, það er hins vegar áhyggjuefni að leikirnir á útivelli virðast ekki vera okkur farsælir.
Þeir félagar Nick og Derrick báru uppi leik okkar liðs í kvöld, en aðrir voru slakir. Þó má undanskilja Fannar sem barðist vel, skoraði 14 stig og tók 9 fráköst. Nick og Derrick gerðu 30 stig hvor en aðrir gerðu ekki mikið í sókninni, því miður.
Haukarnir léku vel, sérstaklega var Sævar bakvörður Haraldsson okkar mönnum erfiður, hann virtist alltaf komast inn í miðju varnarinnar og þar gerði hann mikinn usla. Manciel var sterkur að vanda og Robinson vann síðan leikinn í lokin, eins og frá var greint.
Þjálfararnir okkar fundu ekki réttu blönduna í kvöld, því byrjun fyrri hálfleiks og seinni hálfleiks var góð, en með tíðum innáskiptingum tapaðist takturinn soldið úr liðinu í þetta skiptið. Eins er áhyggjuefni hve auðveldlega Haukarnir komust að körfunni hjá okkur og hve illa okkur gekk gegn svæðisvörninni þegar hægðist á leiknum.
En nú er "undankeppnin" búinn og leikmenn og þjálfarar vita að við þurfum að leika af fullri getu til að komast þangað sem við viljum í úrslitakeppninni. Ein vika er til stefnu og enginn vafi er á að menn munu nýta tíman vel til að koma liðinu í réttan gír. Fyrsti leikurinn verður heima gegn Tindastóli.