Fréttir

Körfubolti | 8. apríl 2004

"Hraðlestin" hitar mannskapinn upp fyrir leikinn á laugardaginn

Tekist hafa samningar við stórhljósveitina "Hraðlestina" um að leika fyrir stemmingu og stuði fyrir leik og í hálfleik á laugardaginn. Á venjulegum dögum gengur bandið undir nafninu "Safnaðarfundur eftir messu" en Keflvíkingum fannst "Hraðlestin" meira viðeigandi í tilefni dagsins. Húsið verður opnað kl. 15.00 og kl. 15.15 mun "Hraðlestin" stíga á stokk og setja allt í botn.